Miðvikudagur
Prósessin gengur vel og það stefnir allt í að þetta gangi upp. Ætti að geta skrifað undir eftir helgi :) Er þegar farin að skipta út innréttingum og brjóta niður veggi í huganum! Er ekkert smá spennt yfir þessu og hlakka ennþá meira til :) Ákvað að taka mig í gegn og byrjaði í dag á vítamínkúr! Ekkert hollywood kjaftæði bara dúndurskamtur af vítamínum og próteini. Búin að fara í allskynns mælingar og læti. Fá prógram hjá sæta þjálfaranum og eg er að vona að þetta gefi mér meiri orku! Þarf svo á þvi að halda!! :)
Damien Rice er í algeru uppáhaldi hjá mer þessa daganna... just love him.. verðið að heyra í honum :)

1 Comments:
Til hamingju með kotið ykkar mæðgur, við hlökkum ógislega til að koma og sjá.
Ásdís
10:50 PM
Post a Comment
<< Home